Þessa köku er tilvalið að gera daginn áður en ætlunin er að bera hana fram til að vinna sér í haginn. Hægt er að leika sér með skrautið enda er hún einstaklega falleg á borði
Einfaldlega dásamlega jólaleg aðventukaka sem enginn ætti að missa af!
Botn
70 g fínmalaðar piparkökur
50 g sykur
2 egg
½ tsk. lyftiduft
Hitið ofninn í 170°C með blæstri.
Þeytið egg og sykur í hrærivél þar til ljóst og létt.
Bætið lyftidufti og piparkökum fínmöluðum varlega saman við.
Setjið í hringlaga form (við notuðum 22 cm form) með bökunarpappír.
Bakið í 15-20 mínútur.
Hvítsúkkulaðimús
320 g safi úr mandarínum
3 matarlímsblöð
200 g hvítt súkkulaði
320 g léttþeyttur rjómi
5 piparkökur, muldar
1 mandarína
Setjið matarlímsblöðin í kalt vatn í minnst 5 mínútur.
Sjóðið mandarínusafann niður til helminga þar til eftir eru 160 g af safa. Þegar safinn hefur soðið niður er hvíta súkkulaðið sett saman við, þar næst matarlímsblöðin. Ef blandan byrjar að stífna mikið er hægt að hita hana aðeins á hellu til að ná betri áferð.
Látið blönduna kólna niður í ca. 35°C.
Blandið 1/3 af léttþeytta rjómanum varlega saman við hvítsúkkulaðiblönduna þar til rjóminn blandast fullkomlega. Því næst er restinni af rjómanum blandað varlega saman við.
Klæðið form með plastfilmu að innan.
Leggið piparkökubotninn neðst og hellið helming músarinnar yfir.
Bætið við léttmuldum piparkökum og 10 niðurskornum mandarínubátum (ca. 1 mandarína).
Hellið restinni af músinni yfir. Látið stífna í ísskáp í minnst 6 klukkustundir.